Indó mældist hæst fyrirtækja á Sjálfbærniásnum árið 2026, annað árið í röð.

Alls hlutu 17 fyrirtæki viðurkenningu Sjálfbærniássins í ár af 60 fyrirtækjum.

Sjálfbærniásinn 2026 var kynntur miðvikudaginn 6. maí 2026. Indó mældist hæst þeirra fyrirtækja sem mæld voru en alls hlutu 17 fyrirtæki viðurkenningu fyrir árangur í sjálfbærni.

Sjálfbærniásinn metur viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni. Mælingin er svar við aukinni kröfu viðskiptavina og annarra hagaðila um að fyrirtæki leggi meiri áherslu á sjálfbærni.

Markmiðið er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á viðhorfi til vörumerkja í tengslum við frammistöðu þeirra varðandi sjálfbærni.

Niðurstöður

Kvarðinn

Gildin eru á bilinu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð frammistaða.

Öll fyrirtæki sem fá afbragðsgóða einkunn fá viðurkenningu.

Fyrirtæki fá einnig viðurkenningu fyrir að vera hæst á sínum markaði ef einkunn er hærri en 50.

Viðmið Sjálfbærniássins

Mældir markaðir

Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig í ár voru fyrirtæki á alþjóðamarkaði og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var markaðurinn sjávarútvegsfyrirtæki.

Stigalægsta fyrirtækið hlaut 36 stig af 100 mögulegum og stigahæsta fyrirtækið hlaut 82 stig. Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 82 stig. Össur mældist með næsthæstu einkunn, 81 stig og Íslensk erfðagreining með þriðju hæstu einkunnina, 80 stig.

Viðurkenningar voru veittar á hverjum markaði fyrir sig auk þess sem fyrirtæki sem mældust með afbragðsgóða einkunn hlutu sérstaka viðurkenningu. 

Öllum þeim fyrirtækjum sem eru mæld gefst kostur á að kaupa niðurstöðurnar.

Heildarmeðaltal markaða 2026

Meðaltal allra fyrirtækja 2026

Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum 2026

Við óskum vinningshöfum Sjálfbærniássins 2026 innilega til hamingju